My so called life...

26.05.2007 23:50:39 / maria

Home sweet home

Heil og sæl

Þá er bloggað úr höfuðstað norðursins...Akureyri:haha:

Ávallt yndislegt að koma hingað...móttökurnar voru þó ekki alveg eins hlýjar og ég hefði kosið:whut: Fjöllin hálf-hvít...erekkaðfílaða:whut:

Það er jú alveg að koma júni...for kræing ád lád

Anyway, síðan ég kom hef ég bara étið...hvert sem ég kem er otað að mér mat og meiri mat eða nammi. Það er Kjarnaskógur á morgun bara........(brrrrr...)

En mál málanna er auðvitað Ungfrú Ísland. Við stelpurnar hittumst yfir keppninni (og með nammi) að benda og dæma, hehe.... Og ég verð að segja að ég er mjög mjög sátt við úrslitin nema þá 3.sætið...hefði alveg viljað fá Írisi Rut, Karen Lind eða Sigríði Huldu þar....En ekki oft sem maður er svona sammála úrslitunum :haha: Svo er líka alltaf svo gaman að skoða kjólana...og kropana líka :P

Ótrúlega fallegar... En hvað er samt málið með þessa "blómvendi"? Frekar spes....

 

Þóra sæta átti síðan ammæli í dag og í tilefni af því bauð hún okkur stelpunum í fullt af góðgæti. Svo er það nú bara þannig að þegar við stelpurnar erum samankomnar með börnin okkar þá gætum við fyllt heila leikskóladeild (rosalega frjóar, kærulausar...já eða e-ð allt annað....) :P hehe Enda voru ekki nema 3 óléttar þarna í dag....

Þóra ammælisbarn og Silja, sætar eins og alltaf 

Jæja rólegt kvöld í kvöld...sem er bara fínt (held ég sé að verða gömul)

- Góða nótt sykurpúðar -


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 23:07:38 / maria

Bjútí kjútí

Ungfrú Ísland á morgun....

jibbí, mér finnst alltaf rosa gaman að horfa á keppnina...spá og spegúlera ;)

Ég er aðeins búin að skoða stelpurnar á netinu og mér finnst vera alveg bara ótrúlega margar sem mér finnst vera GULLfallegar :)

Að vísu kom síðan Unnur Birna í þáttinn á skjá einum, og hún er bara það allra fallegasta kvikindi sem ég hef séð, hehe

 

En alla vega þær sem mér finnst koma til greina eftir að vera búin að skoða myndir og sjá viðtöl þá eru það þessar:

Jóhanna Vala (held að hún vinni)

Katrín Dögg (var með mér í klásus) :)

Karen Lind

Íris Rut

Birna (held að hún fái ekki neitt en finnst hún mjög sæt)

Dóra Björk

Sigríður Hulda

Fanney Lára (flott og sæt en vil ekki að hún vinni samt)

(gæti mögulega breyst samt þegar ég sé þær á keppninni sjálfri)

Ok, er komin með 8 af 24, gæti alveg tínt til fleiri en stoppa hér....kemur allt í ljós á morgun:)

Mér finnst þær líka flestar sætari í tv-inu heldur en á þessum myndum...

En nóg af bjútíbulli....

Á morgun höldum við Silja norður á Ak-city. Ætlunin er að dvelja þar í alla vega viku og hjálpa mömmu bestu. Hún fór í aðgerð í gær og kom heim í dag, hún má ekkert gera þannig við Silja ætlum að bregða okkur í hjúkkubúninginn og dekra við "gömlu":haha::haha: Silja er þvílíkt spennt og ég auðvitað líka, ætlum að vera duglegar að bralla e-ð skemmtilegt, vonum bara að bannsett veðrið verði til friðs:lol: Er síðan búin að lána íbúðina og græja þar með pössun fyrir litla ferfætlinginn minn í leiðinni:haha: snilldarlausn;)

Við Silja bökuðum pönnukökur í dag...heppnar þær að hafa ekki verið í fegurðarsamkeppni:lol: En greinilega skiptir innihaldið meira máli en útlitið þegar öllu er á botninn hvolft því þær brögðuðust mjög vel :haha:

Að lokum ætla ég að klappa vel fyrir sjálfri mér því ég raðaði í kvöld rúmlega 800 myndum sem ég framkallaði í Boston í nákvæma tímaröð (n.b. þá var Silja búin að rugla þeim öllum):S. Og þetta eru bara myndir frá jan til júlí...ó boy ó boy...

Jæja þá er ég farin að pakka niður fyrir Eikei....og ég pakka yfirleitt 3/4 of mikið, hehe

kv. María "myndarlega" ;) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 22:10:19 / maria

Blaður....

Jæja lesendur góðir...

...það er frekar þungt ský sem hvílir yfir mér núna....

*andvarp*

málið er að ég veit ekkert í hvorn fótinn skal stíga

er hrædd um taka ákvörðun sem ég á eftir að sjá eftir...

þetta íþyngir mér svo mikið að ég kem engu í verk, bíð eftir að e-ð gerist...en það gerist auðvitað ekkert nema ég geri e-ð sjálf í málunum

ég er að tala um framtíðina

*hvað ég á að læra*

ég lofaði sjálfri mér því að eftir sumarið yrði ég búin að taka ákvörðun og engin eftirsjá.....good luck with that

í næstum tvö ár er ég búin að búa í Reykjavíkinni og er litlu nær hvað mig langar að verða þegar ég verð stór

það er einfaldlega úr alltof miklu að velja:|

  • tannlæknir: á ég að reyna aftur, leggja mig 120% fram og vona að mér fari fram í tálguninni sem var mitt lakasta en um leið það sem erfiðast er að bæta. Og vona að mér muni ekki finnast starfið einhæft og of mikið kyrrsetustarf......
  • líffræðingur: það býður uppá ótal ótal möguleika, þetta á alveg mjög vel við mig að lang flestu leyti, hefði þá mestan áhuga á sameindalíffræði og fara í framhaldsnám, helst e-s staðar úti.... Eða jafnvel verða næsti David Attenboruogh ;) Verst er að ég veit ekkert hvernig atvinnumöguleikar eru eftir nám....En kennsla er reyndar einn möguleiki í framhaldi sem er líka örugglega mjög gaman :)
  • ljósmóðir: heillar mig að mörgu leyti, en er samt ekki nógu viss
  • læknir: væri alveg til í það, nema er auðvitað alveg búin að skemma það fyrir sjálfri mér, búin að gleyma alltof mörgu og vera alltof kærulau, auk þess sem Silja mín myndi ekki auðvelda mér neitt :S
  • heilbrigðisverkfræði: var að skoða þetta hjá HR og virkar mjög spennandi en þyrfti að dusta rykið af stærðfræðinni minni er ég hrædd um...:haha:
  • geisla-eða lífeindafræði: finnst mér líka alveg spennandi að mörgu leyti, samt kannski ekki sem ævistarf...æi veit ekki
  • lífefnafræði: enn einn spennandi kostur
  • Hossaræktardeild við Hólaskóla: líka mjög mjög mjög spennandi en erfitt að fá góða atvinnu við þetta hugsa ég, nema að vera "fæddur" inn í bransann
  • flugmaður: það er auðvitað gamall draumur...en ekki alveg það fjölskylduvænasta
  • lyfjarfræði?
Drauma draumadjobbið væri nottla Victoria´s secret fyrirsæta 8):lol::$ en höldum okkur á jörðinni, hehe....gæti þá kannski alla vega orðið heimsfræg leikkona, já eða söngkona....en já...það eina sem stoppar þá möguleika er hræðsla mín við að koma fram fyrir framan fólk ;);)
Þar fór það fyrir lítið :haha::haha:
Ég er örugglega að gleyma heilum helling sem mig langar að læra...en ekki eins og þetta sé ekki nóg....


Alla vega veit hverju ég hef ekki áhuga á (með fullri virðingu fyrir þeim sem hafa áhuga á þessu), það er allt í hugvísindageiranum, viðskipta-og fjármálaheiminum, lögfræði allt í lagi svo sem en skrifstofustörf heilla samt ekki, félagsvísinda- eða guðfræðideild ekki minn tebolli. Og þar fram eftir götunum.... Þannig það er auðvelt að útiloka margt en svooo erfitt að velja eitthvað eitt. Væri líka spennandi að læra ljósmyndun...en samt kannski meira sem hobbý, nema ég fengi að mynda aðal stjörnurnar ;)

Annars var helgin fín, fór með Írisi og fleirum í húsdýragarðinn á e-ð M12 dæmi og je minn...þar voru öll börn borgarinnar saman komin, sem var bara aðeins of mikið fyrir mig...:lol:

kíkti svo út um kvöldið með krökkunum sem ég var með í verklegu í örverufræði í vetur...rosa gaman:haha:

 

Við hétum *Team Coli* eða *Kólífólkið* í vetur
því okkar hópur vann næstum undantekingarlaust með bakteríuna E. coli
Frábært fólk á ferð, alltaf gaman í skýrsluvinnu hjá okkur alla vega :)
Jafnvel þó Finnur hafi oft á tíðum verið frekar þreyttur á smámunaseminni í okkur Guðnýju, hehe
Við bjuggum meira að segja til okkar eigin kólídans við scatman-lagið...stuðboltar ó já 8)
Silja sæta var máluð sem Hello Kitty í húsdýragarðinum
Guðný & Finnur, members of Team Coli ;)
Við Kólísystur saman inná Barnum :)
 
Jæja, kveð í bili....
fer í háttinn enn einu sinni jafn rosalega óákveðin og alltaf :S
Once again, ofur langt blogg *roðn*
 
kv. María munnræpa


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 08:39:17 / maria

Það helsta...

Hey hey fallega fólk,

(sko þetta er þriðja sinn sem ég byrja á þessu bloggi, sofna alltaf við skriftirnar sem segir mér að þetta er annað hvort alltof langt eða alltof leiðinlegt blogg...en ég er þrjósk þannig here it goes...)

Sumarfríið er í það minnsta formlega byrjað, sem þýðir að prófin eru búin. Nema auðvitað það sem ég frestaði til sumars:S Ohhh þetta er svo ljúft....engar bækur að öskra á mann, ekkert samviskubit að naga mann né stress að gera útaf við mann...."...ljúfa líf ljúfa líf....";)

Ægir fór auðvitað á sjóinn akkúrat daginn fyrir síðasta prófið mitt:S Skemmilegt frí sem hann fékk greyið:$ Svo á föstudagskvöldið héldu Hulda og Nanna tvöfalt 25 ára afmæli, þemað var "persóna úr kvikmynd" Valið hjá mér stóð á milli zorro og Paris Hilton...græjaði svo þennan fína Hilton búning.....nema hvað að svo var minns bara veikur...urr :klikk: Langaði geggjað því það var t.d. ratleikur um alla borg og veitingar góðar í boði. En veikindin stoppuðu stutt, eða bara þennan eina dag...ekki fimmtudag, eða laugardag...neibb...eina daginn sem e-ð var planað, föstudaginn!!!:frown:

Anyways, það voru kosningar og eurovision líka. Ég skilaði auðvitað inn mínu atkvæði í kosningunum:haha: en lét það alveg eiga sig í þessu eurotrashi.....siríeslí... þessi keppni er svo mikið crap!!!! Borðaði með Sissu, Ása og fleirum og horfði lítið spennt á keppnina. Ekkert skrall þar sem heilsan var ekki orðin alveg 100% auk þess sem óhófleg drykkja er á bannlista a.m.k. mánuð í viðbót.

Sunnudaginn var ég ofurfersk. Við Silja keyrðum niður í Öskju, og stóra skessa labbaði og litla skessa hjólaði niður að Tjörn. Þar var brauðmolum hent í fugla og haldið tilbaka. Uppí hesthús til Sissu og Ása lá leið okkar næst. Það var alveg yndislegt að komast þangað. Hef lítið séð af hestum síðan síðastliðið sumar. Skellti mér á bak með Ása. Mér var hent á hálfgerða orrustuþota, flotta en þrjóska, alveg fékk ég að finna fyrir því...stóð í valdabaráttu við blessaða hryssuna þennan klukkutíma sem reiðin stóð, en ég hafði betur....en það kostaði blóð, svita og tár hehe...eða alla vega strengi. Svo heldur fólk það sé bara afslöppun að ríða út...kjánar. En þetta var bara gaman, og alveg orðið miklu meira en tímabært. Enda hafa allir gott af því að ríða annað slagaið, er haggi? ;) :P Silja var algjörlega á heimavelli innan um hestana...svei mér ef hún líkist ekki bara mér þegar ég var lítil :haha::haha:

Síðan er ég búin að gera vorhreingerninguna á íbúðinni. Það gekk frekar hægt. Ryksugan mín gaf upp öndina eða er í verkfalli. Þannig ég fékk lánaða ryk"sugu". Þvílíkur forngripur sem það var. Þetta var eins og gamall mjólkurbrúsi/trog sem í staðinn fyrir að sjúga rykið þá blés hún því um allt:evil: Eftir smá pælingar kom reyndar í ljós að ég hafði stungið rörinu í vitlaust gat8| Ohhh.. hata þegar það gerist, við viljum að öllu sé stungið í rétt göt hér, híhí :lol: En svo fór hún að sjúga af áfergju (vá hvað mér finnst ég geta verið að skrifa um e-ð allt annað en ryksugu) en blés síðan alltaf lofti út um annað gat...þannig allt rykið fór á fleygiferð:evil: Þannig ég hljóp um með stútinn á eftir öllu rykinu, frábær aðferð ef maður vill fá meira út úr þrifunum;) Þetta tók nú tímana tvenna. En nú glansar allt og bíður mín bíllinn næst:haha: Er líka byrjuð í "átaki" hef er að taka mataræðið aðeins í gegn. Ætla reglulega út að hlaupa og kaupa mér kort í ræktina og lyfta eins og enginn sé morgundagurinn. Veit bara ekki hvar...:| Er að spá í Laugar eða Hreyfingu eða Sporthúsið...en markmið sumarsins er að passa aftur í fötin mín áður er skólinn byrjar;);) Já þannig eins og þið "heyrið" þá er minns svaka duglegur og ætlar að vera það áfram ;)

"ryksugan" "góða"

Einnig er ég nýbúin að eiga deit við Dr. McDreamy. Hann vill hafa mig alla vega mánuð í viðbót á kúrnum góða. Í hvert sinn sem við hittumst tökum við saman þungarpróf, Saman bíðum við svo spennt eftir niðurstöðum, störum á niðurstöðuprikið með eftirvæntingarglampa í augum:P Nema ólíkt öðrum "pörum" þá viljum við neikvætt svar...sem var auðvitað raunin í þetta skiptið:haha::haha: Já ég hlakka til næsta deits við McDreamy.........8)

Svo átti hún Íris ammæli í dag, bauð í kökuveislu sem er alltaf næs. 25 ára skvísan, jebb....við eldumst. Svo mikið er víst. Til hamingju með daginn sæta skvíz....:haha::haha:


Jæja ég ætla að hætta þessu rausi svo ég sofni ekki enn einu sinni og þurfi að byrja í 4. skiptið á þessari færslu:S

Góða nótt rassmussarnir mínir & dreymi ykkur vel

(úff alltof langt blogg) 8|


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 12:06:49 / maria

holy crap

1 & 1/2 tími í próf og ég man ekki rass í bala af því sem ég er búin að lesa......:(

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 23:21:38 / maria

5 ár ;)

 Jæja þá erum við Ægir búin að vera saman í 5 ár í dag:haha::haha:...það er nú meira en flestar Hollywood stjörnur geta státað af.... ;);)

 

 Lítið gert í tilefni dagsins sökum próflesturs:evil: en það koma dagar eftir þennan dag...:haha:...bara 4 dagar enn og þá er þetta búið...sem er snilld

Og annað sem er snilld...heyrði í útvarpinu á leiðinni í skólann í dag að hinar heimsfrægu kryddpíur....betur þekktar sem SPICE GIRLS ætli að koma saman og halda tónleika um jólin næstu....ef það er raunin þá væri það bestasta jólagjöf sem ég gæti hugsað mér, því mig langaði alltaf svoooo að fara hér á "yngri" árum..hehe

 

 

 Það væri líka gaman að sjá hvort maður kynni alla dansana svona vel eins og einu sinni...ég meina ég var ekki spice girls stelpa skólans fyrir ekki neitt:lol::lol::lol:

En jæja...ég er farin heim, er með hausverk, ógleði og endalausa þreytu. Ekkert sniðugt að hanga í skólanum í svoleiðis ástandi...

Jæja, eins og kryddpíurnar mynda orða það....: 

Goodbye my friend... :haha:

8).....SPICE UP YOUR LIFE.....8) 


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 00:39:56 / maria

Ekki fyrir viðkvæma :P

Ef þið hafið einhvern tíman haldið að það væri gaman að lesa um stjórnun á genatjáningu....tjaa...þá höfðuð þið all svakalega rangt fyrir ykkur...

...og ef þið hélduð að fólk í háskóla væri snyrtilegt fólk sem kynni að nota klósett......tjaaa.....þá höfðuð þið líka rangt fyrir ykkur.....því það sem blasti við mér í gær var ÞETTA:

Og bíðið....it gets better.......

En úr skítnum yfir í annað...prófin skollin á, lífræn efnafræði búin, örverufræðiprófið líka búið en ég ákvað að taka það bara í sumar því ég vil fá hátt, og frumulíffræðin er á föstudagin...ætli það endi ekki bara í sumarprófi þar líka. Það var fullmikil bjartsýni að ætla tækla þetta..að því er virðist endalausa magn námsefnis á 4 dögum.....:S

NOTE TO SELF: ...í framtíðinni...........LÆRA JAFNT OG ÞÉTT YFIR ÖNNINA.........held það geti hjálpað manni...hehe...:lol::lol:

 

 

Eitt af því ótal mörgu dóti sem ég er að fást við.......lúkks læk a lot off fönn...æ nó...

Svo er Ægir greyið einstæður faðir þessa dagana og sér um barnið og heimili eins og herforingi:haha: Hann rétt sér skugganum mínum bregða fyrir á nóttinni og heyrir jafnvel þrusk í mér á morgnanna...ef hann er heppinn, en þessu fer senn að ljúka.

Fórum reyndar í húsdýragarðinn á sunnudaginn að kíkja á litlu nýfæddu kiðlingana...hrikalega sætir:haha::haha::haha:

Jæja hef akkúrat frá engu að segja núna...langaði aðallega til að deila þessum skemmtilegum myndum með ykkur ;):haha:...:$

Ef e-n vantar að finna mig þá er ég bara á bókasafninu í Öskju, fer að setja staðsetninguna í símaskránna því ég er farin að skjóta rótum hér...með nefið klínt í bækurnar (oft bókstaflega) :$

 
Svo vil ég fá komment frá ykkur sem leggið leið hingað inn...................ok?

 

8)lag próftíðarinnar er alveg pottþétt FOREVER með gus gus8)

ps. Eru Liverpool bestir eða eru þeir bestir.....;)



» 10 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti