My so called life...

11.07.2006 21:25:11 / maria

Íbúðaleit

Jamms er á fullu að leita að íbúð. Hmmmm er að verða pínu stressuð, maður er kominn með alltof miklar kröfur sko. Skoðaði eina íbúð um daginn á Hjarðarhaga sem er nottla SNILLDAR staðsetning uppá bæði skólann og leikskólann að gera en mér fannst íbúðin ekki alveg nógu góð. Skoðaði svo aðra í Gullsmára, hún slapp svo sem alveg en gaurinn gat engan vegin gert sig skiljanlegan sem var að sýna þannig ég eyddi ekki miklu púðri í það EN  svo í kvöld skoðaði ég DRAUMA íbúð...alveg sko æðisleg nema hvað....þá er hún auðvitað LENGST uppí Grafarvogi:klikk: Á maður að láta sig hafa það....það eru 11 km heiman frá mér og þangað, sem gæti orðið púsl þegar Ægir er í landi, mikill bensín kostnaður....auk þess meika ég ekki e-a brjálaða umferð en íbúðin var æði! Hvað skal gjöra....hrökkva eða stökkva. Skyldi maður fá ásættanlega íbúð nær skólanum fyrir 1.sept???????? Hjálppppppp!!!!!

Annars skil ég núna betur af hverju sumir héldu með Ítalíu....fann þessar og þá meikar þetta meiri sens to me....;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 23:41:25 / maria

cumcumcumcumcumcumcumcumcum...hahahahaha....japanska meibí???

Komiði sæl og blessuð

Þá er snilldar útilega í Húsafelli að baki. Allt gott nema veðrið hefði alveg mátt láta ljós sitt skína:klikk: Vorum með frábæra aðstöðu, ALLTOF mikinn mat og nottla fullt af skemmtilegu fólki...vorum held ég 13 fullorðin, 4 litlar dúllur og ein 8 ára gella sem sá sko alveg um skotturnar;) Fórum á föstudag, ég og Silja og Sara, Sunneva og Embla sóttu okkur. Við erum held ég enn að klóra okkur í hausnum yfir því hvernig í fjáranum okkur tókst að troða öllu draslinu í bílinn8| Ó vell...föstudagskvöldið endaði alla vega í þessu fína fylleríi, sem kostaði mikla þreytu morguninn eftir en sem betur fer enga þynnku. Skelltum okkur að sjálfsögðu í sund þrátt fyrir glæpsamlega hátt verðlag....450 kr á mann8|8|8| Jæja maður lét sig hafa það...meira að segja 2 þennan dag því um miðjan daginn skelltum við girlur okkur í reiðtúr og létum strákana og óléttu konurnar sjá um börnin. Gef hestunum ekkert hæstu einkunn en mjög gaman engu að síður, riðum um mjög þéttan skóg/kjarr og stoppuðum við flottan foss og svona huggleg heit. Kvöldið var í rólegri kantinum hvað drykkju varðar en örðu máli gegnir um hlátur og svefngalsa:haha::haha::haha: Ég er ekki viss um að hafa hlegið svona mikið á einu kvöldi áður. Orð kvöldsins....ef ekki ársins er with out a doubt CUM...algjörlega einkahúmor en á því verður lifað leeeeengi;););) Shitt stelpur....hláturinn lengir lífið og þið bættuð klárlega einum 2 árum við líf mitt í gær;) Fórum svo í sund, aftur í dag...1500 í sund á einni helgi fyrir eina manneskju, makes no sense to me:$

Þegar heim kom var þreytan að buga mig...saknaði þess MJÖG mikið að eiga ekki ma&pa hér í bæ, dottaði upp í sófa meðan Silja brasaði við draga allt herbergið fram í stofu...hehe...uppgötvaði svo mér til mikillar ánægju að Sýn væri órugluð og gat því horft á leikinn. Gudda, Sigrún og Lilja komu og horfu með mér til "meðlætis" eins og ónefnd vinkona segði ;) Var sko í upphafi algjörlega viss um að Frakkar yrðu heimsmeistarar, svo þegar Zidane setti fyrsta markið, læddist fram lítið bros á varir mér sem þýddi....sko...engar áhyggjur, þetta fer allt vel, en þegar menn fara í nautaat og stanga mann og annan þá grípa goð og guðir í taumana:klikk: Alveg klikkz kallinn. En Zidane er samt bara meget hot sko en leiðinlegt að skilja svona við ferilinn sinn. Nú það mætti halda að hinar verstu fótböltabullur hefðu verið hér heima, tapsárir Frakkar og Ítalir í sigurvímu hefðu farið hamförum....þetta er svo slæmt og er ekki að nenna laga til. Rúmið heillar óneitanlega meira....þannig later.....

takk fyrir frábæra helgi frábæra fólk ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 23:19:24 / maria

Tilboð í gangi

En Ægir minn farinn á sjóinn:cry:...fór á föstudaginn og Stína og Hörður líka, þannig það var ansi tómlegt um helgina. Ég ætlaði auðvitað á Landsmót hestamanna á fimmtudag en Silja er svo rosalega kvefuð, með mikinn hósta og búin að vera frekar lítil í sér þannig ég ákvað að sleppa að fara....mjög erfið ákvörðun. Hélt þetta mundi nú aldrei gerast...held það geti fáir skilið hvað mig langaði mikið, en verð að taka velferð Silju fram yfir hestana auðvitað. En ég sparaði mér þó dágóðan skilding sem verður þá bara eytt í Barcelona í staðinn:haha: Kannski bara í Barcelona búning á prinsessuna litlu;)

Nú svo er komið tilboð í íbúðina....alveg ásættanlegt tilboð...skrifaði undir tilboðið í dag, þannig ef þau fá að yfirtaka lánið (sem er stór plús fyrir okkur, þá er íbúðin farin)...vá hvað ég mun sakna kotsins okkar. Okkur er búið að líða svo vel hérna og Hlíðarnar er besta staðsetning höfuðborgarsvæðisins, stutt í allt...á rvk mælikvarða, ekki of nálægt miðbænum en samt stutt, rólegt hér og íbúðin svo passleg fyrir okkur að öllu leyti. Áttum að vísu eftir að gera eitt og annað, vantaði borðstofu settið og svona ýmislegt dúllerí.

En þetta er samt það gáfulegasta að gera miðað við þessa brjáluðu verðbólgu og þær spár að íbúðaverð fari lækkandi. Við töpuðum engu á íbúðinni en ef við hefðum átt hana lengur held ég við hefðum getað lent í svoleiðis veseni, fyrst við ætlum ekki að eiga hana langt fram í framtíðina. Leggjum svo bara peninginn úr íbúðinni inná bók, fáum vexti og söfnum meira inná hana ;) Getum svo keypt aftur þegar markaðurinn róast og jafnvel íbúðaverð orðið lægra (eins og spáir)...snilld yrði það ;) Svo ef ég kemst ekki inn um jólin þá erum við frjáls og getum farið norður eða jafnvel út. En við hefðum hvort eð er að öllum líkindum selt þessa íbúð á næstu 3-5 árum þannig ég er mjög sátt við stöðu mála.

Skil eiginlega bara ekkert í fólki sem er að kaupa í dag miðað við allar umræðurnar sem eru í gangi...en ekki mitt að hafa áhyggjur af því. Eini gallinn við þetta allt saman er að ég nenni ekki að finna aðra íbúð, pakka, flytja og koma okkur fyrir...en Ægir ætlar svo sem að sjá um það að mestu fyrir okkur. Verð kannski pínu "pikkí" á næstu íbúð...reyni samt að hemja mig:haha:

En þegar öllu er botninn hvolft hafði ég rétt fyrir mig once again;)...því ég vildi leigja þegar við fluttum suður því ég vissi ekkert hvernig mér mundi líka hér en Ægir tók ekki annað í mál en að kaupa. hehe...en enginn skaði skeður fyrst ekkert tap varð á kaupunum, bara gaman að hafa búið hér, mun sko alltaf þykja vænt um þennan tíma hér. Nú er ég bara spennt fyrir því sem koma skal:haha:

Anyway...ef þið vitð um góða 3-(4) herb íbúð á góðum stað (t.d. Hlíðar eða nálægt Háskólanum) og er ágætlega útlítandi....plís let me know...við yrðum topp leigendur...alltaf borgað á réttum tíma, reyklaus og góð umgengni ;)

María -bráðum ekki íbúðaeigandi has spoken her brains out-

Svo vil ég óska afmælisbarni dagsins, henni Sigrúnu ofurskvísu til hamingju með árin sín 24:haha::haha::haha:

Looking good girl;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 13:27:01 / maria

Spes...

Hvað finnst fólki um að þessi ofur myndarlegi ofur töffara kroppur sé að fara gefa út rapp plötu??? 8|8|8|:$:$:$:$Það verður sko hilarious:haha::haha::haha::haha::haha: Baywatch kóngurinn er af baki dottinn;) O MY GOD
The image “http://www.davidhasselhoff.com/images/dhnew3.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.The image “http://www.davidhasselhoff.com/images/large/albummitch2(big).jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 00:40:03 / maria

Read and remember

Stal þessu hjá blómarósinni....hope you don´t mind girl:) Þetta er bara svo rugl flott.

Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið, svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem hentar okkur.

Kannski opnast dyr hamingjunnar á einum stað um leið og þær lokast á öðrum, en oft störum við svo lengi á lokuðu dyrnar að við sjáum ekki hinar sem hafa opnast.

Kannski er bestu vinurinn sá sem þú getur rólað þér með á veröndinni án þess að segja orð og síðan gengið í burtu og liðið eins og þú hafir átt eitt besta samtal ævi þinnar.

Kannski er satt að við vitum ekki hvað við höfum átt þangað til að við missum það, en það er líka satt að við vitum oft ekki hvers við höfum saknað fyrr en við öðlumst það.

Það eitt að gefa einhverjum alla okkar ást tryggir ekki að viðkomandi elski okkur á móti.

Ekki búast við ást í skiptum fyrir ást; bíddu þangað til ástin vex í hjörtum annarra og ef það gerist ekki, skaltu þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í þínu hjarta.

Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta einhvern niður, klukkutíma að láta sér líka við einhvern og einn dag að verða ástfangin af einhverjum, en það getur tekið lífstíð að gleyma einhverjum.

Kannski ættir þú að reyna að ná í einhvern sem fær þig til að brosa, vegna þess að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Ekki fara eftir útliti, það getur blekkt.

Ekki fara eftir auðævum, þau geta horfið.

Finndu einhvern sem fær hjarta þitt til að brosa.

Þegar þú fæddist varstu grátandi og allir í kringum þig voru brosandi.

Lifðu þannig að þegar þú deyrð verðir þú brosandi og allir í kringum þig grátandi.


» 3 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti