Ætli það sé ekki við hæfi að byrja á að óska lesendum gleðilegrar hátíðar..
Ahh... jólin, dásamlegur tími.. ekki satt? Svona þegar frá er dregið allt stress og kaupæði sem virðist aukast með hverju árinu. Það skemmir pínu.. ég vil ekkert stress, ekki dýrar gjafir.. sem koma beint frá hjartanu, kærleik, slappa af og njóta þess að vera til 
En alla vega...
Desember.. framan af eyddi ég honum að mestu uppá bókasafni í VRII, las og glósaði frá mér allt vit á milli þess sem ég skaust að sækja mér mat (lang oftast á KFC)
eða í búðir að tína til jólagjafir handa vinum og ættingjum. Ég er ekkert sérstaklega stolt af þessari próftíð þar sem ég geymdi próf.. sem á bara eftir að koma og bíta mig í rassinn... Janúar verður því strembinn
Auk þess sem ég komst að því (again) að það borgar þig líklega að læra aðeins yfir önnina, geyma ekki ALLT fram á síðustu stundu

Hélt í mér lífinu í prófunum

Amerískur kleinuhringur.. sem gerði pásu frá lestri skemmtilegri

Rakst á þetta á hlaupum við að kaupa jólagjafir og nammi í próflestri.. ég veit ekki með ykkur.. en mér finnst þetta full dónaleg uppstilling fyrir leikfangadeild 

En þrátt fyrir próflestur var þetta góður mánuður.. t.d. þegar rauðklæddu kallarnir fóru að færa glaðning í skó mátti vart sjá hvor okkar var spenntari.. ég eða Silja
Úff, hvað mér finnst þetta gaman
Samviskubitið nagaði mig þó frekar mikið.. að geta ekki jólast meira með Silju
En vonandi næ ég því næst
En ég er heppin, á gott fólk í kringum mig sem sá til þess að Silja upplifði jólastemminguna í öllu sínu veldi
Takk.
Nú svo átti hún Sissa frænka litla gullfallega prinsessu þann 11. des. Hún er alveg yndisleg og það er svo gaman að sjá Sissu í þessu nýja hlutverki
Við Silja erum alveg heillaðar af henni og hlökkum sko til að fá að passa hana

Yndislega litla frænka mín

Þegar ég sagði mínum próflestri svo loknum (einu prófi of snemma.. eða tveim
) var tvennt sem beið mín, Dexter og Victorias Secret tískusýningin.. þá voru sko jólin
Victorias Secret sýningarnar eru í einstaklega miklu uppáhaldi hjá mér, en það vitið þið eflaust sem hafið lesið hér reglulega
En þetta var ekki það eina sem beið mín.. jólagjafakaup, innpökkun, taka jólakortamynd og fleira svona jólastress.. sjæsa
Uppáhalds 



Algjörir ofur kroppar í ofur nærfötum.. 

Fáránlega heitur 

Jólakortamyndataka.. sem gekk ekkert ofur vel.. 

Jólakortamyndin í ár, ekkert fullkomin - en varð að duga
21. desember brunuðum við mæðgur ásamt jólakettinum Pardusi norður yfir heiðar, ekki nema svona 5 tímum á eftir áætlun
Það var bara alltaf að koma meira og meira sem gera þurfti fyrir brottför.. Og missti ég því af þreföldu 25 ára afmæli, fannst það ekki gaman og kvíði því að sjá myndir úr afmælinu og sjá hverju ég missti af
En auðvitað lét ég mig ekki vanta á Gus Gus þann 22. des.. ákvað það strax og ég heyrði að þau væru að spila þennan dag að ég færi sko - sama hvað! Skemmti mér bara mjög vel, ákvað að prufa að drekka BARA gin, svona til að reyna að koma í veg fyrir þynnku.. og það svona svínvirkaði

daginn eftir var ég sko laus við alla þynnku
Þó ég hafi drukkið meira en góðu hófi gegnir..
Á leið í glamúrpartý:


Kristbjörg, Rakel og ég í glamúrfíling

Ég eldhress
Þannig að á Þorláksmessu var ég við hestaheilsu að klára jólagjafir og gera jólakortin. Jólakortin fóru svo ekki póst fyrr en á aðfangadagsmorgun, alltaf svo tímanlega í öllu þessi María.
Aðfangadagur var æði.. hann er alltaf dáldið mikið uppáhalds
Nammi og barnaefni.. nema í ár fór ég í hestaleiðangur með afa.. sem endaði með hjálmlausum berbakreiðtúr.. frjáls sem fuglinn.. bara næs.
Fékk rjúpur í jólamatinn sem er líka uppáhalds
Pakkarnir skiptu örugglega hundruðum undir 2 m háa ameríska jólatrénu okkar. Silja og Taníu rifu upp hvern dýrgripinn og fætur öðrum.. rosa gaman.. þær voru svo rosa spenntar en samt svo stilltar
Við fullorðna fólkið vorum sko aldeilis ekki skilin út undan og fengu allir marga og fagra pakka. Mér finnst alltaf gaman að fá pakka, en ég gæti svo auðveldalega verið án þess.. fæ mínar gjafir í gegnum Silju. Besta gjöfin var einmitt frá henni.. ljóð sem mamma lét Silju gera, svo gaf hún okkur líka skál sem hún málaði og dagtal sem hún gerði á leikskólanum.. uppáhalds
Ég nenni nú ekkert að fara telja upp gjafirnar.. en Júniform fötin frá Ægi rokkuðu sko alveg
Er sko algjör pæja í því
Aðfangadagskvöld
Ljóðið frá Siljunni

Jólaprinsessa

Við mæðgur á jóladag
Síðustu dagar hafa svo farið í heimsóknir, kjötát, spil.. sem ég hef öll unnið
, sleðaferðir í Jólasveinabrekku, litlu-jól með stelpunum, skiptumst þar á gjöfum - og spiluðum - ekkert fyllerí að þessu sinni
, bíó á the Beemovie, Deperate housewifes gláp langt fram á nætur, skauta (kem ekki sterk þar inn), hesthúsið - þar sem við lékum við folald... og fleira svona svo e-ð sé nefnt.. og svo auðvitað þessi týpíska jólaleti
Ægir greyið þurfti að fara á sjó milli hátíða, sem er ömurlegt og ætti ekki að eiga sér stað.. en maður ræður víst litlu um það
Já svo er ég búin að vera ofur ofur dugleg að setja myndir inná síðuna hennar Silju.. henti inn myndum fyrir 4-5 mánuði. Fyrir það fæ ég sko stórt klapp
Vá hvað það var leiðinlegt og ætlaði engan endi að taka..

Í Jólasveinabrekku
Skautadrottningar 

Silja með folaldinu

Ég með dúllunni litlu
Svo er auðvitað ekki hægt að blogga á gamlársdag öðruvísi en að fara yfir árið. Það verður fljótlegt þar sem þetta var nokkuð tíðindalítið ár.. Jæja, ég byrjaði reyndar í líffræði og hef kynnst þar fullt af skemmtilegu fólki. Námið þykir mér í flesta staði áhugavert.. sem samt er ég ekki alveg viss um að þetta sé nákvæmlega það sem ég vil gera.. kannski er það þess vegna sem ég hef ekki lagt mit neitt fram í þessu..
..sem er pirrandi. Ég varð kvartaldargömul á árinu sem mér þykir hræðilegt um leið og ég er þakklát fyrir að fá tækifæri til að fá að eldast. Ég flutti aftur í Hlíðarnar og finnst yndislegt að vera þar, en hata samt að flytja..
En þegar ég renni yfir árið í huganum er eitt sem stendur upp úr. Það er friður sem loks komst á.. fyrir fullt og allt
Áralöng ósætti voru lögð að baki og við tók vinátta, sætti, skilningur og þakklæti. Fyndið að það sem eitt sinn pirraði mig, skuli ég í dag vera svona þakklát fyrir. Fyrir vikið líður mér vel í hjartanu og finn innri frið


Silja með bræðrum sínum
Ég stóð auðvitað ekki við síðustu áramótaheit frekar en aðrir. Árið 2008 verður ár ákvarðana og breytinga.. meira ætla ég ekki að segja.. látum bara verkin tala. "Eina" áramótaheitið mitt er temja mér meiri þolinmæði og finna sjálfa mig.. hvort tveggja mjög þarft..
Mér finnst ég stundum vera í lausu lofti og horfa á lífið frá hliðarlínunni
Stjörnuspá dagsins í dag:
Vatnsberi: Þú samþykkir fólk sem er mjög ólíkt þér. Það er yndislegur siður og kostur sem átt þú án efa að taka með þér inn í nýja árið. Skildu eftir þörfina til að þóknast öðrum.
Ok þá er ég hætt, komið meira en nóg held.......
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla!!!!!!!!
Love... María
